← Til baka á oporto.is

Persónuvernd og vafrakökur

Síðast uppfært 12. október 2026

oporto.is er leiðarvísir á íslensku um Porto, rekinn í samstarfi við Eastland Events. Hér er útskýrt hvaða gögn verða til þegar þú heimsækir vefinn og hvernig þau eru notuð.

Hvað við söfnum

Vefurinn er ekki með innskráningu, eyðublöð eða póstlista og við söfnum engum persónuupplýsingum um gesti sjálf. Ef þú sendir okkur tölvupóst notum við netfangið þitt eingöngu til að svara erindinu.

Mælingar á heimsóknum

Við teljum heimsóknir til að sjá hvaða efni nýtist. Það er gert án vafrakaka og án þess að geyma IP-tölur: skráð er hvaða síða var skoðuð, af hvaða vef gesturinn kom, gerð tækis og tungumál vafra. Gögnin eru samtölur og verða ekki rakin til einstaklinga.

Þjónustur þriðju aðila

Til að vefurinn virki sækir vafrinn þinn efni frá eftirtöldum aðilum, sem sjá þá IP-töluna þína eins og við allar vefheimsóknir:

Tenglar á Google Maps og aðra vefi opnast á viðkomandi vef, þar sem skilmálar hans gilda.

Auglýsingar og vafrakökur

Vefurinn er fjármagnaður með auglýsingum. Tilboð frá samstarfsaðilum í Porto eru birt beint af okkur og nota engar vafrakökur.

Á vefnum geta einnig birst auglýsingar frá Google AdSense. Þá gildir eftirfarandi:

Nánar um hvernig Google notar gögn: policies.google.com/technologies/partner-sites.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, samkvæmt persónuverndarlögum (lög nr. 90/2018) og GDPR. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar, personuvernd.is.

Hafa samband

Eastland Events · info@eastland.is